14maí

...

Jæja þá er komin barnalandssíða... www.oktoberbumba.barnaland.is. Ekki vera feimin við að senda meil og spurja um lykilorð!Brosandi Ég bít ekki... fast...

M.
14. maí 2007 klukkan 10:15
Magnea Rún Magnúsdóttir
5 athugasemdir
21apríl

-..I come from the land of ice and snow..-

Jæja þá er maður kominn heim. Ég er búin að vera að reyna að berja í mig kjark til að blogga, en nenni því ekki. En núna er komið að því. Komum heim á seinasta laugardag eftir gríðarlega langt ferðalag:
  • Taxi frá Alsancak (bærinn okkar) á miðnætti á föstudeginum (eða reyndar kominn laugardagur).
  • Keyrt í einn og hálfan tíma á flugvöllin. Flug þaðan klukkan 04.
  • Flug til Búdapest, 3 klst. Farið úr vélinni og í aðra vél.
  • Flug til Bretlands, aðrar 3 klst. Lent á Gatwick.
  • Taxi frá Gatwick til Stansted. Smá stress að ná því flugi því að fluginu frá  Búdapest seinkaði aðeins. En höfðum alveg nógan tíma.
  • Flug til Íslands, 3 klst. Lent á Keflavík. Keyrt til Dalvíkur í hvelli, 4  1/2 klst.
  • Fór beint í bað, drakk íslenskt vatn og rotaðist uppí rúmi um níu leitið.
  • Þannig að samtals voru þetta 24 klst af ferðalagiHissa Je minn!
Ferðin var æðisleg. Vorum reyndar ekki jafn heppin með veður í þetta skipti, en fengum samt alveg nokkra mjög góða sólardaga. Fékk þónokkurn lit, en alltaf finnst mér hann jafn fljótur að fara og hann kemur, allavegana í andlitinu!! Fórum ekki í siglingu í þetta skiptið. En gerðum margt sem við gerðum ekki seinast. Borðuðum helling. Fjögur seinustu kvöldin fórum við að svona "flottari" staðina og í öll skiptin fengum við Lena okkur forrétt, aðalrétt, og eftirrétt. Alltaf risarækjur steiktar í hvítlauk í forrétt!! MmmUllandi Og seinasta kvöldið fengum við okkur pönnukökur sem eru eldaðar fyrir framan okkur, eitthvað karamellu og brandí!! Og þetta var svo rótsterkt að maður gat ekki étið þetta!! OjjÖskrandi En manni finnst samt alltaf jafn gott að komast heim og sofa í sínu rúmi og borða íslenskan mat! Myndirnar úr ferðinni eru í hinni tölvunni, en hún er í viðgerð. Set inn einhverjar myndir seinna, en þetta tekur samt svo helvíti langan tíma, og oftan en ekki þá bíð ég í klukkutíma með einhverjar 8 myndir og svo fara þær ekkert inn á síðuna!!Öskrandi

En við vorum að enda við það núna að panta flug til Danmerkur. Förum 11-20 júní frá Akureyri. Endalaust flakk á manniBrosandiSvo koma Gústa og þau til Íslands endaðan júní og mamma og pabbi voru að panta flug 1. ágúst til 13. ágúst og ætla að vera hér hjá okkur, enda er nóg pláss hérHlæjandi Hlakka til að hitta þau. Eyþór farinn að tala þvílíku dönskuna!!

En jæja, við erum að fara út að borða með Hildi og Ingvari á Greifann. Þetta er feitur dagur, vorum að koma úr afmæli hjá þeim, Ingvar á nefnilega afmæli í dag og það voru kökur og heitir réttirUllandi

M.


21. apríl 2007 klukkan 17:12
Magnea Rún Magnúsdóttir
2 athugasemdir
19mars

Vildi bara benda ykkur á að það eru...

12 DAGAR Í KÝPUR Hlæjandi


Kýpur

Ó MÆ LORD Hissa
19. mars 2007 klukkan 17:08
Magnea Rún Magnúsdóttir
2 athugasemdir
08mars

-..bakeríur smakteríur..-

23 DAGAR Í KÝPUR Hlæjandi


En ég nenni ekki að blogga. Það er ekkert að frétta, bara seinna Glottandi

M.
08. mars 2007 klukkan 17:34
Magnea Rún Magnúsdóttir
3 athugasemdir
18febrúar

-..I don’t want to be anything..-

Góðann og blessaðan daginn. Held að það sé kominn tími á nýtt blogg, og rúmlega það!

Við erum byrjuð að vinna á Blönduós. Byrjuðum 1. febrúar. Þetta er bara fínt. Gerum annars voða lítið. Vinnum allt uppí 12 tíma á dag, förum kannski í sund og sofum. En það er alltaf jafn gott að komast heim. Því heima er jú best.

Davíð og Magdalena komu í mat til okkar í gær. Ég eldaði hvítlauksristaðan humar í forrétt og fylltar kjúklingabringur í aðalrétt. Skolað niður með fine rauðvíni. Ekki slæmt það. Vorum að vígja matarstellið sem þau gáfu okkur. Skunduðum svo til Alla og Friðriku í smá júró hitting. Og spiluðum svo spil eftir það. Spil sem er bara til í Ameríku og heitir Scategories. Alveg magnað spil. Svo vildu Davíð og Kristján endilega fara á Bakaríið þannig að ég skutlaði þeim, stoppaði í smá og fór svo heim í ból. Bara rólegt.

En það styttist óðum í Kýpur. 40 dagar ef ég taldi rétt. Kominn spenningur í mann. Er reyndar pínu fúl því að það er ekki jafn heitt og þegar við fórum seinast, og sjórinn ekki nærri því jafn heitir. En þetta verður samt eins og á Spáni á góðum tíma. Þannig að ég kvarta ekkert. Þetta verður frábært. Eigum flug 1. apríl til Bretlands. Þurfum svo að keyra á Gattwick og fljúgum þaðan á Larnaca á Kýpur. Þar tekur við 2 eða 3 tíma akstur til Alsancak. Þetta verður langt ferðalag.

En við förum að fara bráðlega á Blönduós. Er ekki að nenna að keyra. En kallinn er pínu þunnur þannig að ég og mín góðmenska ákváðum að keyra. Við höfum þetta nefnilega alltaf þannig að ég keyri heim og hann á Blönduós. Djöfull er magnað að vera hress.

M.

 


-..other than me..-


Kýpur

 

Ekkert að þessuSvalur

 

18. febrúar 2007 klukkan 15:58
Magnea Rún Magnúsdóttir
3 athugasemdir
28janúar

-..No Subject..-

Janúar mánuður genginn í garð og febrúar á næsta leiti. Styttist í páskana, sem þýðir að það styttist í KÝPUR!! Förum í elda maí / byrjun apríl. Hildur og Ingvar eru að spegúlera eitthvað í því að koma meðSvalur Það verður bara stuð!!

En annars er voðalega lítið að frétta. Er bara alltaf að vinna í fristihúsinu frá 8-4. En við erum að fara á Blönduós núna örugglega í næstu viku og vera þar í einhvern smá tíma því að Norðurströnd er að fara að taka við rekstrinum í harðfiskfyrirtæki þar og við vorum beðin um að fara þangað og vinna þar í smá stund. Það verður bara spennandi, en komum samt heim um helgar.

Fórum í bæinn í gær og gerðum aldeilis stórkaup. Keyptum okkur fartölvu, borðstofuborð og stóla. Keyptum borðið í Vörubæ í stíl við hillusamtæðuna okkar, hann átti gallað og við fengum það á 25 % afslætti. Vorum ekkert smá ánægð með það, þar sem það sést ekkert á borðinu, bara smá rispa á einu horninu. Keyptum svo líka hillu í stíl, erum búin að vera að reyna að koma henni upp en það er ekki að ganga hjá okkur. Alltaf þegar við erum að byrja þá föttum við að okkur vantar eitthvað til að setja hana upp. Kristján er búin að fara til Alla 3var held ég að ná í bor, hallamál og eitthvað kalladót. Hehe…

En við erum að fara að spila með Davíð & Magdalenu. Fengum nefnilega svo magnað spil í jólagjöf frá Gumma & Elvu sem heitir Sequence. Spiluðum það líka í gærkvöldi og erum öll búin að vera að hugsa um það í allann dag!

Farin

M.

-.....-


 

28. janúar 2007 klukkan 01:54
Magnea Rún Magnúsdóttir
2 athugasemdir
08janúar

-..what would you do if I sang out of tune..-

Árið 2007 gengið í garð. Enduðum árið með stæl. Borðuðum frábæran mat hjá tengdó og skutum þar upp. Svo kom Hildur og við skunduðum í partí hjá Írisi. Svo var drifið sig á Bakaríið og þar voru allt of margir, gjörsamlega. Maður gat varla hreyft sig þarna, og ef maður keypti sér bjór þá var hann hálfur þegar maður var kominn út. Sem var sosem allt í lagi, þá drakk maður bara minna. En annars var árið 2006 bara frábært. Kynntist honum Kristjáni mínum sem er náttúrulega bara gleði og hamingja 24/7 allt árið. Ómetanlegt.
Fór til Danmerkur um páskana, Búlgaríu í maí, Danmörk í ágúst, Kýpur í sept og svo aftur Danmörk í Desember. Endalaust flakk á manni. Ætla ekkert að hafa neinar væntingar til þessa árs. Ætla bara að lifa lífinu og hugsa um daginn í dag. Ekkert áramótaheit á þessu ári. Þó svo að ég ætli að reyna að missa nokkur kíló þá ætla ég ekki að kalla það heit, því oftar sem ekki þá stendur maður ekki við það.

Langar að öskra, hoppa uppá borð og dansa.

-..would you stand up and walk out of me..-


:)

 

08. janúar 2007 klukkan 01:52
Magnea Rún Magnúsdóttir
6 athugasemdir
30desember

-...wondering will mother earth survive...-

Komum heim í gærkvöldi um 12 leitið eftir u.þ.b. 17 klst ferðalag. Meira en nóg fyrir mig.

  • Fórum í lest klukkan hálf 8 að DK tíma. Sáum íslenska stelpu í lestinni. Ég fattaði það þegar ég sá að hún var að gramsa í veskinu sínu og ég sá Bónus miða. Sem gerði það að verkum að við fórum að tala aðeins öðruvísi við hvort annað. Gleymir sér annað slagið í öðrum löndum!!
  • Í flugvélinni hittum við Dana sem var að fara í fyrsta skiptið til Íslands. Talaði um það hve mikið hann hlakkaði til að fá sér sveppi á íslandi. "Ofskynjunarsveppi??" spyr ég Kristján eins og algjör bjáni. En ekki hvað??
  • Fórum í Kringkuna og ég mátaði kjól í e-i búð. Of lítill. Eða bara ég of stór? Fór til Kristjáns og þá uppgötvuðum við að taskan mín var ekki þar sem hún átti að vera. Stressumst upp. En hún var sem betur fer í búðinni. Konan tók hana frá. Gleði.
  • Fann loksins áramótakjól, í síðustu búðinni sem við fórum í takið eftir! Á leiðinni út úr búðinni sá ég íslensku stelpuna sem var með okkur í lestinni. Lítill heimur.
  • Komum heim, þreytt. En það stoppaði mig ekki í að opna pakkana tvo sem stóðu á stofugólfinu að bíða eftir okkur. Fengum Trivial spilið og lampa! Fengum svo helling af fallegum gjöfum úti. Kristján gaf mér hálsmen og eyrnalokka í stíl og hann fékk frá mér útiföt.

Þessi ferð var alveg frábær í alla staði. Borðuðum mikið. Vigtin er farin að stara á mig þegar ég labba inn á bað og gefa frá sér einkennileg hljóð. Hvað sem það nú þýðir.

"I'm just a dreamer"

M.

Syskinin

30. desember 2006 klukkan 21:28
Magnea Rún Magnúsdóttir
4 athugasemdir
28desember

-..Þitt var mitt og mitt var þitt..-

Styttist óðum í að maður mæti á klakann. Blendnar tilfinningar tengast því. Kvíður fyrir og hlakkar líka smá til. Langar samt mest ekkert til að fara heim. Hlakka bara mest til að fá besta rúmið mitt og sófann og smá rólegheit og að hitta Kristínu mína og gullmolann minn hann Fannar Inga. Ohh mér finnst eins ég ég sé ekki búin að sjá þau í marga mánuðiÓákveðinn  Eigum lest á föstudaginn klukkan 07:30. Vélin fer svo klukkan 13:20. Svo eigum við eftir að keyra heim til Dalvíkur. Þannig að þetta verður langt ferðalag. Maður verður örugglega alveg búinn á því þegar við komum heim. Hér er samt búið að vera æðislegt. Maður er örugglega búin að bæta á sig nokkrum kílóum. Matur, kökur og öl. Enda ætlum við að kaupa okkur sundkort þegar við komum heim og byrja að synda á fullu. Vonandi fara nokkur þáBrosandi  Það er lygilegt hvað bjórinn kostar hérna. Við kaupum bjór í búðinni hérna, fínn bjór, kassinn á 100 danskar = 1200 kr ísl, 33 c l bjór. En svo skilar maður kassanum sem bjórinn var í og þá fær maður til baka 42 kr = 500 kr ísl. S.s. 700 kr kassin. Sem kostar 3000 eða 4000 þús á ísl. Maður er ekki að skilja hvers vegna þetta er svona dýrt heima. Maður er alveg orðlausÞögull sem gröfin

Það er kominn dálítið mikill spenningur fyrir áramótunum. Verðum í Mímó að borða og skjóta upp. Spurning hvernig það verður á Bakaríinu í ár miðað við hvernig það var í fyrra. Alveg troðfullt útúr dyrum. Það væri nú ekkert slæmt ef Sálin eða e-r hljómsveit myndi mæta í VíkurröstHlæjandi Svo byrja ég að vinna í fristó 3. des. Ekkert jafn mikill spenningur fyrir því...-

En jæja, ætla að fara að bursta og henda mér í bólið. Förum til Horsens til Gústu og Tona á morgun. Mamma og pabbi eru að fara að ná á Gumma, Elvu og Aron sem komu í dag. Við verðum svo eftir og förum svo með lestinni á föstudaginn frá Horsens. Ohh er ekki að nenna þessu ferðalagi. En vonandi hitti ég sem flesta á gamlárs, annars bara þakka ég það liðna. Skemmtið ykkur sem bestHlæjandi Drekkið ykkur blindfull og sjáið eftir því daginn eftir. Gamlárs er jú bara einu sinni á áriGlottandi

Smá í tilefni að verðandi nýju ári...

[YOU]
have you changed: já örugglega...
clothes changed: nei það held ég ekki...
most depressed time this year: byjun árs...
[LOVE]
did you fall in love: já
who was your summer crush: það var ekkert svoleiðis...:)

[SEASONS]
favorite Season: sumarið...
least favorite season: vetur.
good birthday: já hann var mjög góður:)
[FINAL QUESTIONS]
kept your resolution: man ekki eftir að hafa strengt nein heit...
got arrested: neihei!
kissed a girl/boy: jájájá!!
had a crush: jájá..:)
got dumped: nnjjjaaaa....
lost a family member: nei
got bad grades: jepp..
got a myspace: neibb
kept a secret: Já
told a secret: já:)
done something you totally regret: já alveg örugglega...

In 2006 I...
[x] broke a promise
[x] made a new best friend
[x] fallen/been in love
[ ] fallen out of love
[x] lied
[x] cried over a broken heart
[x] disappointed someone close
[x] hid a secret
[x] pretended to be happy
[ ] kissed in the rain
[ ] slept under the stars
[ ] kept your new years resolution
[ ] forgot your new years resolution
[x] met someone who changed my life
[ ] met one of your idols
[x] changed your outlook on life
[x] sat home all day doing nothing
[x] pretended to be sick
[x] left the country
[ ] almost died
[ ] given up something important to you
[x] lost something expensive
[ ] learned something new about yourself
[ ] tried something you normally wouldnt try and liked it
[ ] made a change in your life
[x] found out who your true friends were
[x] met great people
[x] stayed up til sunrise
[x] pigged out over the summer
[x] cried over the silliest thing
[x] partied more than 5 times
[ ] was never home on weekends
[ ] got into a car accident
[ ] found a person I never thought I'd become real good friends with.
[x] had friends who were drifting away from me
[ ] had someone close to me die.
[ ] had a high cell phone bill.
[ ] wasted most of my money on food
[x] had a fist fight
[x] went to the beach
[x] saw a celebrity
[x] gotten sick
[x] liked more than 5 people at the same time.
[x] became closer to someone

Þangað til næst,

M.

28. desember 2006 klukkan 04:38
Magnea Rún Magnúsdóttir
1 athugasemd
24desember

Danmörk í öllu sínu veldi...

Jæja þá er kannski kominn tími á nýtt blogg. En það verður nú ekki langt. Erum stödd í Danmörku hjá mömmu og pabba. Mættum bara hjá þeim á þarseinasta fimmtudagHlæjandi Vildi bara óska öllum gleðilegra jóla. Við sjáumst svo um áramótin, en við komum heim 29. des.

Kveð í bili.

M.
24. desember 2006 klukkan 16:27
Magnea Rún Magnúsdóttir
3 athugasemdir

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Magnea Rún Magnúsdóttir
  • Staður: Dalvík
  • Kyn: kvk
  • Atvinna: Fiskurinn..
  • Hjúskaparstaða: Mjög föst

Klukkan

Leit

Textareitur

“Sinntu starfi þínu eins og þú þarfnist ekki peninganna.”“Elskaðu eins og þú hafir aldrei verið særð(ur).”“Dansaðu eins og enginn sjái til þín.”

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...